ævintýri...
fimmtudagur, júlí 28, 2005:
tékk itt!
travolta sem jr.
minns gétur ekki beðið.
dúdúúú dúdúú dúdúrúrúrúrú dúdúdú dúdúdú
maria // 1:46 e.h.
______________________
þetta sumar er að verða búið.
það eru ritgerðin og vinnan ekki.
lestur fyrir sumarpróf er ekki búinn, hann er ekki einu sinni hafinn.
hvað er þetta eiginlega!!
maria // 10:39 f.h.
______________________
laugardagur, júlí 23, 2005:
stúlkan er að skrifa ritgerð.
merkilegt.
það er besta veður sumarsins, ársins, aldarinnar. stúlkan situr á þjóðarbókhlöðunni og skrifa ritgerð.
hér er ekki hægt að fá kaffi.
veitingasalan er lokuð vegna veðurs.
RUBB ITT INN!
geðheilsa stúlkunnar stendur tæpt ákkúrat nákvæmlega einmitt núna.
maria // 1:32 e.h.
______________________
mánudagur, júlí 18, 2005:
töff:
blasta hittarann "was it all it was" í bílgræjunum með niðurskrúfaðar rúður og liggja í bíljstórasætinu þegar maður tijillar fyrir utan elliheimili á sunnudagsmorgnum. taka svo laugarveginn nema með "what is love" á blastinu. hræða útlendinga í leiðinni. "i þot þei vör kúl in æsland? isinnt þis song viþ haddaway læk 11 jirs agó!"
jebb. stúlkan er ógissslega töff.
skiluru.
maria // 2:35 e.h.
______________________
miðvikudagur, júlí 13, 2005:
stúlkan mætti samstarfsmanni sínum, sem lengi hefur starfað í banka, koma út af klósettinu með vinnuskjöl í hendi. þetta truflaði hana.
af hverju fer bankastarfsmaður með tryggingabréf á klósettið?
er svona mikið að gera?
er hann þreyttur á þessu og að gefa skít í starfið, svona bókstaflega?
er virkilega svona misjafnt hvað kveikir í fólki?
veitir tryggingabréfið með honum öryggiskennd í ókunnum aðstæðum, þ.e. þegar hann er ekki í sætinu sínu?
er þetta kannski allt eðlilegt og stúlkan sú sem er e-ð að misskilja þetta?
maria // 4:48 e.h.
______________________
mánudagur, júlí 04, 2005:
að lifa á brúninni:
river rafting með fazmo klíkunni.
maria // 12:41 e.h.
______________________