>

ævintýri...

þriðjudagur, nóvember 29, 2005:

"lagaðu tölvuhelvítíð frítt og hratt eða ég siga jóhannesi neytanda á þig!!"
"nú? ertu ekki hræddur við hann?! já. já. þú ert að biðja um þetta viðgerðarmaður. biðja um þetta. síðasta viðvörun."
"er tölvan mín mánudageintak? góð tilraun."
"NEYTENDAKAUPALÖG!!!"

"já ég bíð bara hérna þangað til þú ert búinn. 10 mín? ok. drífðu þig. annars segi ég það aftur!"

maria // 9:52 e.h.
______________________

sunnudagur, nóvember 27, 2005:

hún býr miðsvæðis.
hálftíma göngutúr í smáralind og hálftíma tölt í kringluna.
talandi um að vera í hringiðu neyslunnar!

stúlkan er nokkuð viss um að gunnar í krossinum sé farinn að stalka hana. mannfýlan er fokking allsstaðar eins og þeir segja á vönduðu sproki. sundi, hreinsun, á rauðu ljósi. name it. stúlkan sér hann oftar en kærastann sinn. (nú er kannski aðeins verið að bæta í, en það er nauðsynlegt, svona fyrir stílinn sko.)
annað hvort er hann skotinn í stúlkunni eða heldur að hún sé lessa.
það getur bara ekki annað verið.
hann gæti verið að villigötum. enda á guðs vegum. það segir sig kannski sjálft. eða kannski er vegurinn að heiman vegurinn heim. og stúlkan kannski ekki að feta hinn gullna meðalveg. enda ekki furða þar sem vegir liggja til allra átta, og enginn ræður för.
(þetta verður bara dýpra og dýpra.)

maria // 9:24 e.h.
______________________

fimmtudagur, nóvember 17, 2005:

í næsta nágrenni við heimili stúlkunar er sundlaug. svo nálægt að það mætti næstum segja að stúlkan sé með sundlaug í garðinum hjá sér.
bara almenningssundlaug.
kostir þessa fyrirkomulags eru fjöldamargir.

í gær var stúlkan heldur þjökuð og leið á bókunum. til að hressa sig við smellti hún sér í sundgallann og stakk sér útí laug. þessi sundsprettur hreinsaði huga hennar svo að henni þótti næstum guðlegt. þegar hún chillaði með hinum syndgurum sveitafélagsins í heita pottinum eftir sundið áttaði hún sig á skýringunni. gunnar í krossinum hafði synt á næstu braut.

ráð í próflestrinum: synda í heilögu vatni einu sinni á dag. það kemur skapinu í lag. (amk tímabundið).
almennara jafnvel mun verra ráð: vera með sértrúarsöfnuð á speedó í garðinum.

maria // 2:07 e.h.
______________________

mánudagur, nóvember 14, 2005:

afpanta hérmeð þessa vöðvabólgu sem er verið að setja á mann.
afpanta hana.
nei takk.
takk, en nei, þetta hentar ekki núna.
skiluru ekkert eða, vil bara ekki sjá þessa vöðvabólgu núna!
skila henni takk!
gétur maður fengið að skila þessari skítavöðvabólgu núna takk!
og taktu þennan hausverk líka.
þessi hausverkur er kaupauki sem stúlkan hefur engan áhuga á.
bara skila'essu. báðu.
núna!

djö.... er enginn að vinna hérna eða!!!!

maria // 2:30 e.h.
______________________

fimmtudagur, nóvember 10, 2005:

tvífarar ársins, mánaðarins og vikunnar.
nr.1 og nr.2

þessi færsla er í boði kb-banka, vífilfells og heklu, en gestgjafinn er jón ásgeir.
sullenbergerinn próvædar eskort (þó ekki ford) dömur.

maria // 7:04 e.h.
______________________

sunnudagur, nóvember 06, 2005:

vertu sæl maría, sæl og bless.
ég sé þig um jólin vina míííín....

lesturinn er hafinn.
þ.a.l. mun stúlkan aðeins sinna ýtrustu neyðarskyldum sem vinkona, frænka eða einstaklingur í mannlegu samfélagi fram til 21. des. nk. hún væntir þess að þeim sem líkar við hana sýni þessu skilning og verði áfram vinir hennar eftir að þessari prófatörn andskotans lýkur.

góðar stundir.

maria // 3:51 e.h.
______________________

miðvikudagur, nóvember 02, 2005:

nú hefur komið í ljós að stúlkan þarf að fara að æfa sig í að hugsa áður en hún talar eða framkvæmir. hún er að æfa sig í því ákkúrat nákvæmlega núna og ætlar því ekki að linka á heimasíðu þar sem má sjá allra hallærislegasta mynd prófkjörsbaráttu allra tíma. allra prófkjöra allra flokka á öllu íslandi. alltaf. omg.

hallelúja!!

hugsa fyrst gera svo. hugsa fyrst gera svo. hugsa fyrst gera svo.

æ fokk itt.
þekk'ann skiluru.

þrotlausar æfingar hefast aftur núna.
hugsa fyrst gera svo. hugsa fyrst....

maria // 4:09 e.h.
______________________


This site is powered by Blogger because Blogger rocks!








--> Dömur

halla


dilja


edda


sigga


sigrún


jóhanna


rannveig


magga dk


vala og hennar krú


halldóra steinsdóttir


kvenfelagid


valborg


helga bb


magga


mengunn


særún maría


sukk-systur


katrin


thorlaug


jóhanna kristín


dvergurinn


freyja fönn bjútíkvín


marta


sigrun bjork


svana og co.


nafna mín


inga dóra


vala be


sandra


barbara


Þórdís draumadís


Emma Dögg

--> Herrar
Daníel Ingvar sætakrútt

Rognvaldur Þor krúttuhali

Fannar Smári frændi sinn

Ásmundur Múli vestfjarðakrútt

Róbert Alvar hvolpur

Óskar Óskar

Sölvi Freyr kinnakall

Sigurður Atli í Ameríku

æstistrumpur

bjarki baxter

snygging


meggi megg


italinn


ránfuglinn


snorri


arnór


bladamadurinn


haralds


valdi

--> Önnur ríki
zimsenbabwe


taddsikistan


laganemar í úglöndum


dallas

--> Daegrastytting
tikarlegt


a hverjum degi


líka á hverjum degi


deiglan


elsa


orator


sannleikurinn


breinded og gott


nyt


djoflaeyjan



Archives