ævintýri...
miðvikudagur, maí 23, 2007:
suma daga er bara meira að gera en aðra. eins og í dag. biiiiiiiiissí.
fórum í strætó. útlendingar eru ekki vandamál á íslandi. hittum tótallí hressa króata og kenýjumenn og kenndum íslensku á leiðinni til tannsa. Víkingur fór svo til tannlæknis til þess að fá að vita að tönnin er a-ok. bara byrja að bursta þetta asap. eftir highly important bissness míting fórum við og pabbans að skrifa undir kaupsamninginn á nýju íbúðinni okkar. mammans ætlaði að fagna með því að fara í klippingu, en við rákumst á Fannar Smára, Freyju Fönn og mömmur þeirra og tókum miðbæjarrúntinn með þeim í staðinn. Dinuðum svo með forsvarsmönnum húsfélagsINS þar til við brenndum heim að undirbúa pakkninguna fyrir Barcelona á föstudaginn.
til samanburðar voru viðburðir gærdagsins heimsókn til ömmans og afa.
stutt yfirlit yfir afrek dagsins í myndum: (takið sérstaklega eftir einbeitingunni við lestur teiknimyndablaða á biðstofunni hjá tannsa. drengurinn er sennilega læs.)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEimIWxGGehrkhP5dtPOic-QbJ_-X4JriS5rJdQAJpN6Yi5lABPdwOT5rAUsJ9ydfcPnTvY9rOFcwfTc6ye8-1N4Kexs02s9ZwjCzix2xG1wg1BZ5R-RnVFTeiKurch057aAlikZ/s320/100_2315.JPG)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhq3ZyDF0EB-l9J2o_FqHVY0UG50zol39ls9CbhyphenhyphenVuS80KVHMcMH5HXdBT90Ye2VdFwGQufTMO1BDqiUOtsZUbZ7XWEAEgemhR51OoCOPMCKgyT-WrH27Udx1lojYTNIJ0-w9rP/s320/100_2295.JPG)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEglv1Qf3YhQaaLkVnmZaMGaFXe1uylPasJSbbHZtdprVvqrqfICAImBDtOs77VtzlNFyiTueCrg86mD_wN4UCdrQYW7ezVdkLpXyT3Rq-Ve6AkPvsqOBi1EQjyxwloFg3vYq-2q/s320/100_2281.JPG)
maria // 8:20 e.h.
______________________
mánudagur, maí 21, 2007:
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhP240BUZbQ5BbNOOSznALnBAR_2OrDhny4ozXg_bxgvA96Moy72WMQVEEnZIv8iJPzpSQ4ixGUcbc1CHSG8s2F5ckuiScNVdCsIS2tLp0GkyPjy-rhUUQgMmQ8siIpLGmE9t6G/s320/100_2144.JPG)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhbpLzF48W6k9t8EkpHUR5LkPozVm1XW2XbelRSdyht2coa5rWvBDJ2pwn-N0TMWGeDO4qMvzrEUc8EFlwQzs1d9wFIPdeQTimC1AJs1WlHylrbHZEj8qp5KwpFQfaWIQdJj92u/s320/100_2137.JPG)
staðið og setið með frjálsri aðferð. ekki seinna vænna - orðinn 2ja mánaða!
maria // 12:24 f.h.
______________________
föstudagur, maí 04, 2007:
drengurinn er hress þessa dagana...
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEiOtufB936n98N5xiCv99c5T8FZ5Gb7ivub9emMrLgHwF3S0VQt2YVsxTa9lHTHN47vR3FUQH0AiqsZKqVBcT0CS0guKeMSPggryBxWqCVxBYCwUl9HKhtmcGSfNTwmtYL2Wyvf/s320/100_2033.JPG)
og svo duglegur að hjálpa mömmu sinni að læra fyrir próf. hann er sérstaklega hrifinn af reglum um framsal höfundaréttar. eeeeeeðlilega.
maria // 12:33 e.h.
______________________
miðað við að þeir sem Víkingur umgengst mest, fyrir utan foreldrana, eru upp til hópa grænir og bláir (og þ.a.l. örugglega útlendingar!!) teljum við hverfandi líkur á því að barnið samþykki að frjálslyndum verði greidd atkvæði heimilisins í kosningunum. þeir eru samt óforskammaðir þessir grænu (kalla sig "froska" en það gerir nottlega allt þetta "vinnuafl" líka) að þeir ulla og geifla sig framan í myndavélarnar. bara loka landamærunum á þennan lýð!
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhizYYv4LiiL65GwWqyanf1Bc7ivo7sCRUhASFqnSOss7yLbMbG7_NSrR6FcvUI4snROo1nor51lgqeuwfOKEXX2YHi3urvkH_LbjEfoWv3XFN1feePZcTK_snw3scu7A-bhFlW/s320/100_2005.JPG)
sætastur hallar sér makindalega aftur - þess fullviss að vinum hans verður ekki gert að hypja sig af landi brott eftir kosningar þrátt fyrir húðlit sinn og þennan "made in china" stimpil sem þeir hafa fengið á sig.
maria // 12:11 f.h.
______________________
miðvikudagur, maí 02, 2007:
ellý ármanns, þulan með djúpu, þýðu röddina, er orðin e-k carrie bradshaw íslands - bara online. miðað við bloggið hennar er maðurinn hennar freyr sem var einu sinni í innlit útlit með völu matt. ég hef bara eitt um þetta að segja. hann getur EKKI verið big. glætan! hann getur heldur ekki verið aidan. í besta falli berger - en bara undir lokin þegar honum gekk ekkert með seinni bókina - ekki þegar hann kom í brúðkaupið i hamptons. það gæti verið. en þá er ellý bara komin í seríu 5, en þær eru 6 hjá carrie... spámaður.is hvað þetta er spennó!
maria // 4:35 e.h.
______________________